SF.is Stækka letur Minnka letur Hafa samband Prenta Veftré English

FF
LF
Sumarlokun skrifstofu SF 2010
Föstudagur, 09. Júl 2010
Skrifstofa SF lokar mánudaginn 19. júlí vegna sumarleyfa og stendur yfir í tvær vikur. Skrifstofan opnar svo aftur þriðudaginn 3. ágúst.
Meðan á sumarlokun stendur verður hægt að hafa samband við Arnar Sigurmundsson form. SF í síma 822 0351 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 
Mismunandi tollar á makríl til ESB landa
Fimmtudagur, 24. Jún 2010
Samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þá er 7,5% tollur á frystum makrílsamflökum (butterflies/flaps) en áður hefur komið fram að fryst makrílflök beri 0% toll  inn á ESB lönd skv. fréttatilkynningu nr 38/2010 frá ráðuneytinu.
Frystur makríll tekur á sig 20% toll hvort heldur hann sé heill/hausaður og slógdreginn og niðursoðinn makríll tekur á sig 25% toll inn til ESB.
Framleiðendum er bennt á að hafa þetta í huga og kanna tollamálin vel áður en  vinnsla hefst.
 
Aðalfundur SF verður haldinn 24. september nk.
Mánudagur, 14. Jún 2010

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva verður haldinn föstudaginn 24. september nk. að Grand Hótel  við Sigtún í Reykjavík.

Ráðgert er að fundurinn hefjist með venjulegum aðalfundarstörfum kl. 11.00 og er áætlað að fundinum ljúki um kl. 16.00.  Nánari dagskra  verður kynnt þegar nær dregur fundinum.