SF.is Stækka letur Minnka letur Hafa samband Prenta Veftré English

FF
LF
Sáttanefnd skilar af sér lokaskýrslu til ráðherra
Miðvikudagur, 08. Sep 2010

Sáttnefnd hagsmunaðila í sjávarútvegi, þingflokka ofl.  um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða skilaði lokaskýrslu og tillögum til sjávarútvegsráðherra í gær.

Starfshópurinn náði víðtækri sátt um  tvö mikilvægustu málin.
-Í fyrsta lagi að fara svokallaða samningaleið er varðar samninga við sjávarútvegsfyrirtæki  um langtímanýtingu aflaheimilda og endurúthlutun, þó svo að einstaka nefndarmenn hafi fyrirvara um ákveðin atriði.
-Í annan stað var einróma niðurstaða að mæla með því að áfram verði byggt á aflamarkskerfi við stjórn fiskveiða.

Það er mjög mikilvægt fyrir langt og strangt nefndarstarf að það skilaði að lokum þeirri niðurstöðu að hópurinn náði saman um þessi tvö grundvallaratriði við stjórn fiskveiða, eins og segir í bókun fulltrúa SF á lokafundi sáttanefndar 6. september sl.  sem fylgir með þessari frétt.

Lokaskýrslu sáttanefndar ásamt bókunum og örðum fylgikjölum  er að finna á http://www.sjavarutvegsraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/10194

 
Sjávarútvegsstefna 6.-7. sept. 2010
Mánudagur, 23. Ágú 2010

Þann 6.-7. september 2010 verður haldin Sjávarútvegsráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík. Hugmyndin er að skapa samskiptavettvang allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi.

 Sjávarútvegsráðstefnan ehf. sem sér um ráðstefnuna er opið félag sem allir geta gerst hluthafar, sjá nánar á vefsíðu félagsins www.sjavarutvegsradstefnan.is en þar er einnig hægt er að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar.
Skráning fer fram á vefnum http://frontpage.simnet.is/ipg/sjavarreg.asp

 
Sumarlokun skrifstofu SF 2010
Föstudagur, 09. Júl 2010
Skrifstofa SF lokar mánudaginn 19. júlí vegna sumarleyfa og stendur yfir í tvær vikur. Skrifstofan opnar svo aftur þriðudaginn 3. ágúst.
Meðan á sumarlokun stendur verður hægt að hafa samband við Arnar Sigurmundsson form. SF í síma 822 0351 eða á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.