|
Ráðningar- og kauptryggingarsamningar |
|
Ráðningar- og kauptryggingarsamningur fiskvinnslufólks er gerður á einu og sama eyðublaðinu. Skal það nú gert eigi síðar en eftir tveggja mánaða starf hjá fyrirtækinu.
Eyðublað fyrir ráðningar- og kauptryggingarsamning í pdf-sniði er hægt að ná í hér fyrir neðan á síðunni. Eyðublaðið er tvískipt, efri hlutinn er kauptryggingarsamningur og neðri hlutinn er ráðningarsamningur. Eftir útfyllingu og undirskrift beggja aðila , skal taka eitt ljóstir til afhendingar starfsmanni. Síðan skal taka tvö ljósrit af kauptryggingarhlutanum, annað eintakið skal senda til viðkomandi verkalýðsfélags og hitt skal senda Vinnumálastofnun á Norðurlandi vestra til staðfestingar á kauptryggingu starfsmannsins.
Um ráðningarsamninga annarra starfsmanna en fiskvinnslufólks sjá Vinnumarkaðsvef Samtaka atvinnulífsins sem aðeins er opinn fyrir félagsmenn.
ATH! Nýr kauptr.bæklingur er í vinnslu Þá hafa Samtök fiskvinnslustöðva gefið út bæklinginn "Kauptryggingarsamningar fiskvinnslufólks og greiðslur atvinnuleysistryggingasjóðs til fiskvinnslufyrirtækja", en í honum er að finna skýringar við ákvæði 18.4 í kjarasamningi verkafólks. Í bæklingnum er að finna ýmsar leiðbeiningar varðandi greiðslur bóta til fiskvinnslufyrirtækja og sýnishorn af eyðublöðum sem koma að gagni. Kauptryggingarbæklinginn má ná í hér fyrir neðan.
|