| Afkastatengd launkerfi - Bónus |
|
Bónuskerfi og greiðslutöflur Samtök fiskvinnslustöðva aðstoða félagsmenn sína við að koma á bónuskerfum og hvers konar afkastahvetjandi launakerfum og annast alla skipulagningu og tímamælingar sem því fylgja. Þessi þjónusta er félagsmönnum að kostnaðarlausu. Þá sjá Samtök fiskvinnslustöðva félagsmönnum sínum fyrir greiðslutöflum til útreiknings á hóppremíu skv. rammasamningum um hóplaunakerfi í frystihúsum, og saltfisksvinnslu. Í greiðslutöflunum eru premíutaxtar fyrir nær allar afurðir sem framleiddar eru í fiskvinnslufyrirtækjum. Við sjáum um að viðhalda töxtunum og endurnýja þá eftir þörfum og reikna út premíutaxta á nýjum afurðum sem bætast við hjá fyrirtækjunum. Öll þjónusta við uppbyggingu afkastahvetjandi launakerfa og gerð premíutaxta er framkvæmd í samráði við Starfsgreinasambands Íslands og eru sérmál hvers fyrirtækis að sjálfsögðu trúnaðarmál gagnvart óviðkomandi aðilum. Bragi Bergsveinsson tæknifræðingur hjá SF veitir nánari upplýsingar í símum 591 0353 og 822 0353, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . |



