|
Árið 2007 var yfirlýsing um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga gefin út, en hana undirrituðu sjávarútvegsráðherra, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, fiskistofustjóri og formaður Fiskifélag Íslands. Yfirlýsingin var svar við kröfum markaða um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og hafði þann tilgang að upplýsa kaupendur um hvernig stjórnun fiskveiða er háttað á Íslandi og að stjórnunin væri byggð á bestu vísindalegri þekkingu. Jafnframt kemur fram að íslensk stjórnvöld skuldbindi sig að fara að öllum alþjóðalögum og samningum um umgengni við auðlindir sjávar, sem þau hafa undirritað. Í framhaldinu var ákveðið að auðkenna íslenskar sjávarafurðir sem unnar eru úr afla í íslenskri lögsögu með íslensku merki, Iceland Responsible Fisheries. Upprunamerki fyrir íslenskar sjávarafurðir og vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga er markaðstæki sem gefur framleiðendum og seljendum íslenskra sjávarafurða tækifæri til að staðfesta frumkvæði sitt í að mæta kröfum markaðarins með hagsmuni framtíðar kynslóða að leiðarljósi.
ICELAND RESPONSIBLE FISHERIES
ÁBYRGAR VEIÐAR - FISKUR TIL FRAMTÍÐAR
ISLÄNDISCHER FISCH FÜR KOMMENDE GENERATIONEN
PESCA RESPONSABLE DE ISLANDIA
Vefsíða Responsible Fisheries
|