|
Inngöngu í Samtök fiskvinnslustöðva geta fengið öll starfandi einkafyrirtæki, félög eða sjálfseignarstofnanir sem vinna að framleiðslu og/eða sölu á sjávarafurðum og aðildarfélög þeirra. Samtök fiskvinnslustöðva eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins. Innganga í SF eða aðildarfélag þeirra felur jafnframt í sér beina aðild að Samtökum atvinnulífsins með þeim réttindum og skyldum sem kveðið er á um í samþykktum SA.
Árgjald SF skal reiknað sem hundraðshluti af heildarlaunagreiðslum næstliðins árs, nú 0,23% af sama stofni. Lágmarks iðgjald er kr. 8.000. Þá er samtökunum heimilt að innheimta þóknun fyrir sérgreinda þjónustu við einstök fyrirtæki.
Árgjald til SA og iðgjald til vinnudeilusjóðs eru samtals 0,19% af heildarlaunagreiðslum síðast liðins árs eða 0,078% af veltu ef launahlutfall fer yfir 35,3% af veltu. Lágmarks iðgjald til SA er kr. 8.000. Séu gjöld greidd á eindaga skv. 1. mgr. 13. gr., er veittur 5% afsláttur af árgjaldi SA og iðgjaldi, enda séu öll eldri gjöld í skilum.
Árgjöld til SF og SA eru innheimt tvisvar á ári af SF.
Inntökubeiðni fæst með að smella á hlekkin hér að neðan. Prentið inntökubeiðnina, fyllið hana út og faxið til okkar. Faxnúmerið er 591 0358.
Sjá einnig Samþykktir SF
|