| Námskeið |
|
Samtök fiskvinnslustöðva munu skipuleggja námskeið í samvinnu við Matís (áður Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins ofl) (Matís námskeið), Rannsóknarþjónustuna Sýni ehf (Sýni námskeið) og Nýsköpunarmiðstöð Íslands (áður Iðntæknistofnun ofl) Námskeiðin verða haldin að degi til og fellur það því á fyrirtækin að greiða vinnulaun og hugsanlegan ferðakostnað fyrir starfsmenn sem sækja námskeiðin á þeim tímum sem vinnsla er í fyirtækjunum. Tekið skal fram að SF annast umsjón með námskeiðunum án þess að taka gjald fyrir en mun reikna útlagðan kostnað inn í þátttökugjöldin. Sérstaklega skal bent á að Landsmennt og Starfsafl munu greiða þátttökugjöld starfsmanna sem eru félagsmenn verkalýðsfélaga innan Starfsgreinasambandsins. Fyrirtækin þurfa sjálf að greiða þátttökugjöld fyrir aðra starfsmenn nema um sé að ræða starfsmenntasjóði sem bjóða hliðstæð kjör, s.s. Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks. Haft verður samráð við verkalýðsfélög á viðkomandi stöðum þar sem til stendur að bjóða námskeið. Auk Matís og RS námskeiðanna mun SF annast milligöngu, í samstarfi við Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar, um að koma á grunnnámskeiðum sem halda skal fyrir fiskvinnslufólk sbr. ákvæði 18. kafla kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins ásamt námskeiðum fyrir starfsfólk í fiskmjölsverksmiðjum og við fiskeldi og hafbeit. Smellið á viðkomandi heiti til að fá nánari upplýsingar. |



